Framleiðandi: Kenvue

Cooldrops munnsogstöflur

Bæklingur
SmPC

Ef þú vilt ekki að allir viti að þú sért að hætta að reykja gæti Nicorette® Cooldrops verið fyrir þig.

Skoða vöru í vefverslun Distica

Nicorette® Cooldrops

Cooldrops eru lítt áberandi munnsogstöflur með fersku mintubragði.

Nicorette® Cooldrops fást í handhægri öskju sem fer vel í vasa svo askjan er alltaf innan seilingar – eins og t.d. í vinnunni. Nikótínið frásogast í gegnum slímhúðina í munninum og dregur úr reykþörf á u.þ.b. 5 mínútum. Nicorette® Cooldrops gefur þér nákvæma skammta af nikótíni.

Hafðu samband

Jódís Brynjarsdóttir

Jódís Brynjarsdóttir

Viðskiptastjóri Klasi 3
Sigrún Helga Sveinsdóttir

Sigrún Helga Sveinsdóttir

Markaðsstjóri Klasi 3

Nicorette nikótínlyf (innihalda nikótín) eru notuð við tóbaksfíkn. Þau draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og auðvelda reykingamönnum að draga úr eða venja sig af tóbaki. Lyfjatyggigúmmí skal tyggja rólega og láta liggja kyrrt í munninum öðru hverju. Innsogslyfi skal anda að sér í gegnum munnstykkið. Nefúða er úðað í hvora nösina. Forðaplástur er settur á húð. Munnsogstöflur eru látnar leysast upp í munni. Tungurótartöflur eru látnar leysast upp undir tungu. Munnholsúða skal úða í munn. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette og munnholsúðinn og munnsogstöflurnar eru ekki ætlaðar yngri en 18 ára. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is