Framleiðandi: Kenvue

Daktacort krem

SmPC

Daktacort 20 mg/g + 10 mg/g krem

Skoða vöru í vefverslun Distica

Daktacort krem

Við hverju er Daktacort notað?
Sveppasýkingum í húð þar sem bólga og kláði eru mjög áberandi.

Daktacort inniheldur sveppaeyðandi lyf (miconazol) og vægan stera sem er kláðastillandi og bólgueyðandi (hydrocortison).

Hvernig á að nota Daktacort?
Kremið á að bera í þunnu lagi á sýkt húðsvæði tvisvar sinnum á sólarhring. Nuddið kreminu varlega inn þar til það hefur samlagast húðinni alveg. Við fótsveppasýkingu á að þvo fætur og þurrka vandlega áður en lyfið er borið á. Meðferðartíminn er breytilegur frá 2-6 vikum, háður staðsetningu sýkingarinnar á húðinni og alvarleika hennar. Til að hindra að sýkingin blossi upp aftur skal halda meðferðinni áfram í eina viku hið minnsta eftir að einkenni eru horfin.

Börn
Gæta skal varúðar hjá ungabörnum og börnum þegar Daktacort er borið á stórt svæði á líkamanum eða undir loftþéttar umbúðir, þar með taldar bleiur. Forðast skal langtíma staðbundna notkun barkstera hjá ungabörnum.

Aldraðir
Eðlileg þynning húðar verður hjá öldruðum. Því skal nota barkstera í hófi og í stuttan tíma.

Meðganga
Mælt er með því að gæta varúðar við notkun á meðgöngu. Forðast skal að bera kremið á stór svæði á líkamanum eða undir þéttar umbúðir.

Brjóstagjöf
Ekki eru til fullnægjandi og vel stýrðar rannsóknir á staðbundinni notkun Daktacort við brjóstagjöf. Forðast skal að bera kremið á brjóstin.

Smellið hér fyrir texta Sérlyfjaskrár og fylgiseðil.

Hafðu samband

Þórhildur Edda Ólafsdóttir

Þórhildur Edda Ólafsdóttir

Viðskiptastjóri Klasi 3