Saga
Árið 1956 tóku sjö apótekarar sig saman um að koma á umbótum í lyfsölumálum landsmanna og stofnuðu Innkaupasamband apótekara, Pharmaco hf. Þetta var á tímum hafta- og skömmtunarstefnu í efnahagsmálum á Íslandi. Sérstök leyfi þurfti til fjárfestinga og innflutningur var háður gjaldeyris- og innflutningsleyfum. Vöruskortur var almennur og svo var einnig í lyfjaverslunum. Ástandið var óviðunandi og því stofnuðu lyfsalar innkaupasamband apótekara til að svara brýnni þörf og tryggja með markvissum hætti framboð á lyfjum alls staðar á landinu.
Helstu viðburðir í sögu fyrirtækisins:
| 1960: | Pharmaco hf. hefur framleiðslu lögbókarlyfja. |
| 1981: | Delta hf. stofnað til að sinna framleiðslu. |
| 1992: | Eignarhlutinn í Delta seldur. |
| 1993: | Endurskipulagning starfsemi Pharmaco hf., með áherslu á heildsölu og dreifingu á lyfjum, lækningatækjum, hjúkrunarvörum, og snyrtivörum. |
| 1997: | Dreifingarstarfsemi Pharmaco hf. hlýtur ISO 9001 gæðavottun. |
| 2000: | Pharmaco hf. sameinast Balkanpharma í Búlgaríu. |
| 2002: | Pharmaco Ísland ehf. stofnað og selt Veritas Capital ehf. sem er undir forystu Hreggviðs Jónssonar. Pharmaco Ísland verður Pharmanor hf. og stofnar dótturfélag utan um snyrti- og neytendavörur. Dótturfélagið fær nafnið CosNor ehf. |
| 2004: | Dótturfélagið CosNor selt. |
| 2005: | Nafnbreyting 10. janúar, PharmaNor verður Vistor hf. |
| 2007: | Starfsemi innkaupa og dreifingardeildar Vistor gerð að sér félagi, Distica hf. |
| 2008: | Eigandi Vistor, Veritas Capital, gert að virku móðurfélagi. Fjármála- og stoðsvið flytjast í Veritas Capital. |
| 2011: | Starfsemi heilbrigðistæknisviðs Vistor gerð að sér félagi, MEDOR ehf. |
Hafðu samband við Vistor
- HEIMILISFANG
- Hörgatúni 2
210 Garðabær
- Net/Veffang
- vistor@vistor.is
www.vistor.is
- SÍMI/FAX
- Sími: 535 7000
Fax: 565 6485
- VISTOR
- KT: 630402-3870
VSK númer: 75030
Pöntun og dreifing
412 7520
