Gildi
Gildi Vistor, sem starfsmenn fyrirtækisins hafa að leiðarljósi í störfum sínum, eru ÁREIÐANLEIKI – HREINSKIPTNI – FRAMSÆKNI
Gildin eru táknuð með þessum merkjum:
![]() |
![]() |
![]() |
||
|
Áreiðanleiki |
Hreinskiptni |
Framsækni |
Þessi gildi voru niðurstaða gildavinnu sem allir starfsmenn fyrirtækisins tóku þátt í.
Áreiðanleiki snýst um það að standa við gefin loforð og vinna af heilindum með fagmennsku og heiðarleika að leiðarljósi. Birgjar, viðskiptamenn og aðrir geta treyst því sem við segjum og lofum og að lög, reglur og aðrar kröfur sem til okkar eru gerðar séu virt.
Hreinskiptni skapar grunninn að heiðarlegu vinnuumhverfi. Við gefum skýr skilaboð og segjum það sem í brjósti býr á nærgætinn og uppbyggilegan máta. Við viljum virkja skoðanir sem flestra og örva gagnrýna hugsun. Að tala hreint út og fara ekki í kringum hlutina sparar tíma.
Framsækni táknar löngun og viðleitni starfsmanna til að vaxa, þróast, þroskast og gera betur. Við leitum alltaf leiða til að gera betur – endanleg lausn er ekki til. Við erum opin fyrir breytingum og nýjungum, sýnum frumkvæði og ögrum núverandi stöðu.
Hafðu samband við Vistor
- HEIMILISFANG
- Hörgatúni 2
210 Garðabær
- Net/Veffang
- vistor@vistor.is
www.vistor.is
- SÍMI/FAX
- Sími: 535 7000
Fax: 565 6485
- VISTOR
- KT: 630402-3870
VSK númer: 75030
Pöntun og dreifing
412 7520



