Þann 3. mars var skrifað undir samning um kaup á nýju PHILIPS tölvusneiðmyndatæki fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús.
Skrifað hefur verið undir samning milli Landspítala Háskólasjúkrahúss og Vistor hf. um kaup á iCT-SP tölvusneiðmyndatæki frá Philips.
Tækið verður tekið í notkun í byrjun maímánaðar.
Að undangengnu útboði á síðastliðnu ári var ákveðið að gera rammasamning við Vistor um kaup á Brilliance 64 tölvusneiðmyndatæki fyrir LSH Fossvogi og iCT-SP
fyrir LSH Hringbraut. Tækið í Fossvogi hefur reynst ákaflega vel og er nú stefnt að uppsetningu á nýju tæki á Hringbraut.
Tækið er búið sér eiginleikum til hjarta- og æðarannsókna og leysir af hólmi eldra tæki sem fyrir er.
Sjá einnig frétt LSH: Frétt
Nánari uppl.: Stefán S. Skúlason
|
Á myndinni eru Ásbjörn Jónsson, Björn Zoëga, Gísli Georgsson, Brynjar Vatnsdal Pétursson, Guðbjörg Alfreðsdóttir, Stefán S. Skúlason og Pétur Hannesson |