lyfjaumbod

Alvarlegar aukaverkanir lyfja skal tilkynna lækni eða Vistor á póstfangi safety@vistor.is eða í síma 535-7000. Eftir lokun skal hafa samband við öryggisþjónustufyrirtæki okkar í síma 460-6261, vegna tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir eða innkallanir sem framkvæma þarf tafarlaust.

Þar sem Ísland er aðildarríki að Evrópska efnahagssvæðinu EES förum við eftir tilskipun 2001/83/EB og reglugerð726/2004/EB. Við fylgjum leiðbeiningum og verklagsreglum í útgáfu 9 af Eudralex og vinnureglum markaðsleyfishafa og Vistor hf. Lyfjagátarteymi Vistor samanstendur af tveimur lyfjagátarfulltrúum og skráningafulltrúa hvers markaðsleyfishafa fyrir sig.
Lyfjagátarfulltrúar bera ábyrgð á:

  • svörun neyðarsíma utan skrifstofutíma
  • að fylgjast með vefsíðu Lyfjastofnunar með tilliti til lyfjagátar
  • þjálfun starfsfólks Vistor í stöðluðum verklagsreglum varðandi öflun upplýsinga um aukaverkanir og tilkynningu þeirra
  • rýni Læknablaðsins með tilliti til aukaverkana
  • að senda aukaverkanatilkynningar sem berast Vistor til markaðsleyfishafa og Lyfjastofnunar
  • þýðingu frumheimilda
  • að leita eftir frekari upplýsingum um aukaverkanir
  • varðveislu frumgagna
  • Lyfjagátarfulltrúar Vistor eru Álfrún Óskarsdóttir og Birna Vigdís Sigurðardóttir 

Hafðu samband við Vistor

  • HEIMILISFANG
  • Hörgatúni 2
    210 Garðabær
  • SÍMI/FAX
  • Sími: 535 7000
    Fax: 565 6485
  • VISTOR
  • KT: 630402-3870
    VSK númer: 75030

Pöntun og dreifing

412 7520