Þann 1. janúar sl. tók Gunnur Helgadóttir við starfi framkvæmdastjóra Vistor hf. af Guðbjörgu Alfreðsdóttur.
Gunnur er MBA frá Háskólanum í Reykjavík og með BSc próf í hjúkrun frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað hjá Vistor frá árinu 2003, fyrst sem sölufulltrúi og síðan í 5 ár sem markaðsstjóri. Einnig hefur hún víðtæka starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur, mestmegnis í Svíþjóð.
Við óskum Gunni til hamingju með starfið og óskum henni alls velfarnaðar.
