Þann 6. júní sl. var haldinn Fjölskyldudagur Veritas Capital og dótturfyrirtækja, Vistor, Distica, Artasan og Ritara í Skemmtigarðinum í Grafarvogi. Um 200 manns, starfsmenn, makar og afkomendur þeirra gerðu sér glaðan dag, snæddu grillaðar pylsur og léku sér í blíðskaparveðri m.a. í mini-golf, þrautabraut, hoppukastala, „laser-tag“ og „paint-ball.“